|
|
Enn
lengist ævin
Meðalævilengd Íslendinga hefur aukist úr um 73 árum í 81,5 ár á
hálfri öld og mun að mati Hagstofunnar aukast í 86 ár næstu hálfa
öldina. Er þá miðað við svonefnda ólifaða meðalævi við fæðingu. Athygli
vekur að bilið milli karla og kvenna hefur verið að minnka. Það var tæp
5
ár fyrir fimmtíu árum, konum í vil, er nú 3,6 ár og spáð er að
kynjabilið verði aðeins rúm 2 ár að fimmtíu árum liðnum. |
|
 |
Fyrir hálfri öld voru 2 Íslendingar á lífi sem náð höfðu hundrað ára
aldri, fyrir aldarfjórðungi voru þeir 22 og nú eru þeir 43. Búast má við
að sú tala eigi eftir að hækka mikið á næstu árum og áratugum.
27.07.2010.

|
Sterkur
stofn af Ströndum
Sagt var frá því í Bændablaðinu fyrir þremur árum að 97 ára kona á
Selfossi, Anna Margrét Franklínsdóttir, hefði tekið þátt í sláturgerð
með fjölskyldu sinni og saumað fyrir keppina eins og ekkert væri. Fram
kom að Anna Margrét hefði verið á vinnumarkaðinum til 91 árs aldurs. Hún
er nú orðin 100 ára. Anna Margrét er eitt þrettán barna Franklíns
Þórðarsonar og Andreu Jónsdóttur á
Litla-Fjarðarhorni í Kollafirði í |
|
 |
Strandasýslu.
Faðir hennar varð
sextugur en móðir
hennar 97 ára. Fimm systkinanna eru enn á lífi og er Anna Margrét elst
þeirra. Hin eru Aðalheiður (96 ára) Nanna (94 árs), Margrét (88 ára) og Guðborg (86 ára). Þau sem eru látin urðu 79-94 ára.
Meðalaldurinn er 90 ár, sem mun vera Íslandsmet þegar þrettán systkini
eiga hlut að máli.
15.06,2010. (21.10.2007.))

|
Sex
ættliðir á lífi
Gissur Ó. Erlingsson var að verða
101 árs þegar
barnabarna-barnabarnabarn hans fæddist, 25. febrúar. Þá voru sex
ættliðir á lífi. Þetta hefur sennilega aðeins gerst þrisvar áður hér á
landi, fyrst árið 1974 og þá var jafnvel talað um að þetta væri einstakt
í heiminum. Gissur var viðstaddur þegar þetta langalangalangafabarn hans
var skírt Bragi. |
|
 |
Sex ættliðir
á sama tíma munu vera algengastir í beinan kvenlegg, eða því sem næst. Í
þessu tilviki eru karlarnir fimm en konan ein, sem er mjög sérstakt.
01.05,2010. Sjá
skjal:
Sex ættliðir á lífi.

|
Sigsteinn á Blikastöðum varð tæplega
105 ára
Sigsteinn Pálsson,
sem bjó lengi á Blikastöðum í Mosfelssveit, lést 4. febrúar 2010,
tæplega 105 ára að aldri. Hann hafði verið elstur íslenskra karla í
nokkur ár. Aðeins fjórir karlar hafa ná hærri aldri, sá elsti varð
tæplega 106 ára. Sigsteinn var Austfirðingur, fæddur
16. febrúar 1905 á Tungu í Fáskrúðsfirði.
|
|
 |
Þegar Sigsteinn varð hundrað ára kom fram í Morgunblaðinu
að hann væri stálminnugur,
færi nær daglega í leikfimi og spilaði brids í hverri viku. Samkvæmt upplýsingum
frá Hálfdani Helgasyni ættfræðingi
voru systkinin þrettán
en tólf þeirra náðu fullorðinsaldri. Elstu
bræður Sigsteins urðu 90 og 97 ára og elstu systurnar 91 og 94 ára.
Faðir þeirra systkina varð 96 ára og langafi 99 ára, svo að langlífi
hefur verið í ættinni. Kona Sigsteins, Helga
Magnúsdóttir, varð 92 ára. Sigsteinn tók virkan þátt í félagslífi, var
meðal annars hreppstjóri í tvo áratugi og var talinn elsti starfandi
Lionsfélagi í heimi.
Á vefsíðu Mosfellsbæjar
var Sigsteinn spurður um
lífsspeki sína. Svar hans var: „Lifa reglusömu og hófsömu lífi.“
Elstu íslensku karlarnir nú eru
Kristján Jónsson og Steindór Jónsson, sem eru 101 árs. Í þriðja sæti er
Gissur Ó. Erlingsson, tæplega 101 árs.
05.02.2010.
(Steindór lést í febrúar 2010,)

|
Aldrei fleiri 100 ára og eldri á
lífi
Nú eru 44 Íslendingar á lífi sem
eru hundrað ára eða eldri og hafa þeir aldrei verið fleiri. Konurnar eru
36 og karlarnir 8. Fyrir einu ári voru á lífi 40 Íslendingar sem náð
höfðu hundrað ára aldri, fyrir tíu árum voru þeir 26 og fyrir þrjátíu
árum aðeins 6.
Torfhildur Torfadóttir
á Ísafirði er elst Íslendinga, 105 ára |
|
 |
síðan í maí. Hún er fædd í Asparvík í
Strandasýslu. Margrét Hannesdóttir í Reykjavík er næstelst, varð
105 ára í júlí. Hún er frá Núpsstað í Vestur-Skaftafellssýslu. Fjögur
systkini hennar er á lífi, á aldrinum frá 79 til 100 ára. Þriðji elsti
Íslendingurinn og elsti karlmaðurinn er Sigsteinn Pálsson í
Mosfellsbæ sem varð 104 ára í febrúar. Hann er fæddur á Tungu í
Fáskrúðsfirði en bjó lengi á Blikastöðum í Mosfellsbæ.
30.12.2009.

|
Samanlagður aldur systkinanna er nær 205 ár
Margrét Hannesdóttir er 105 ára í dag, 15. júlí.
Bróðir hennar, Filippus Hannesson, er 99 ára og verður
100 ára í byrjun desember. Samanlagður aldur þeirra er tæplega 205 ár,
sem mun vera Íslandsmet.
Margrét er búsett í Reykjavík en Filippus á æskustöðvunum.
Þau eru börn Hannesar Jónssonar pósts á Núpsstað í
Vestur-Skaftafellssýslu og Þórönnu Þórarinsdóttur. Börnin voru tíu og er
helmingur þeirra enn á lífi. Meðalaldur systkinanna tíu er 89 ár, sem er
mjög hár aldur svo margra systkina. Þess má geta að þegar Margrét fæddist,
en hún er elst í systkinahópnum, var Þóranna móðir hennar 18 ára en
Þóranna var orðin 44 ára þegar yngsta systkinið fæddist.
|
|

Systkinin Filippus
og Margrét
á Núpsstað fyrir fimm árum.
Mynd úr Morgunblaðinu (ýtið á
myndina til að sjá hana stærri). |
Alls hafa 26 Íslendingar orðið 105 ára, 22
konur og 4 karlar. Fimm úr þessum hópi bjuggu í Kanada, þar á meðal
Guðrún Björnsdóttir sem hefur orðið elst Íslendinga, en hún lifði í 109
ár og 310 daga.
15.07.2009.
(Filippus lést í maí 2010,)

|
Torfhildur elst Vestfirðinga
Torfhildur Torfadóttir, elsti
núlifandi Íslendingurinn, varð 105 ára 24. maí. Hún er fædd í Asparvík í Strandasýslu, yngst
ellefu systkina (átta alsystkina og þriggja hálfsystkina) og ólst upp í
Selárdal í Steingrímsfirði. Nokkur systkinanna náðu háum
aldri, Ásgeir varð 100 ára, Eymundur 96 ára og Guðbjörg 91 árs.
|
|
 |
Eftir fermingu var
Torfhildur í vinnumennsku í Króksfirði og Reykhólasveit
í Austur-Barðastrandarsýslu en flutti síðan til Ísafjarðar og
giftist Einari Jóelssyni sjómanni. Einar lést árið 1981. Þau eignuðust fimm börn og eru þrjú þeirra
á lífi, Torfi 59 ára, Sigurbjörn 67 ára og Kristín 76 ára.
Ekki er vitað um neina íbúa
Vestfjarða sem náð hafa hærri aldri en Torfhildur. Magðalena
Kristjánsdóttir á Patreksfirði varð 103 ára (lést 2001) og
Rakel Sigurðardóttir á Vöðlum í Mosvallahreppi í Vestur-Ísafjarðarsýslu
varð einnig 103 ára (lést 1956).
15.07.2009
(22.05.2009).

|
Gissur sló stúdentametið
Gissur Ó. Erlingsson
loftskeytamaður og þýðandi lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík 30. júní 1928, fyrir 80 árum og tæpum tíu mánuðum, aðeins
nítján ára að aldri. Ármann Jakobsson bókmenntafræðingur, sem hefur
tekið saman skrá um elstu stúdentana, staðfestir að Gissur hafi nú
slegið met Þorsteins Jóhannessonar prests í Vatnsfirði við Djúp
en hann hélt einnig upp á 80 ára stúdents-
|
|
 |
afmæli en lifði ekki alveg eins lengi eftir
stúdentsprófið og Gissur. Alls hafa sextán náð 75 ára stúdentsafmæli og
eru fjórir þeirra á lífi. Auk Gissurar eru það Einar B. Pálsson
verkfræðingur og Katrín Smári kennari, sem eru 78 ára stúdentar,
og Lúðvík Ingvarsson lögfræðingur, sem er 75 ára stúdent.
Þegar Gissur útskrifaðist var
Þorleifur H. Bjarnason rektor Menntaskólans. Í skólaslitaræðu hans gætti
ekki mikillar bjartsýni. "Þó hann teldi leiðina ekki glæsilega fyrir
menntamenn lands vors kvaðst hann hafa trú á því að hinir nýju stúdentar
myndu sigra örðugleikana er biðu þeirra," sagði Morgunblaðið.
Stúdentarnir voru 39, úr máladeild 31 og 8 úr stærðfræðideild.
Gissur varð hundrað ára í mars,
er mjög ern og býr í Seljahlíð við Hjallasel í Breiðholti. Hann er
fæddur í Borgarfirði eystra en flutti til Reykjavíkur á barnsaldri.
Gissur mun hafa þýtt meira en 160 bækur og er enn að.
18.04.2009. Sjá
skjal:
Langlífir stúdentar.

|
Líkur á að
ná 100 ára aldri hafa margfaldast
Um 0,15% þeirra sem fæddust fyrir 150 árum
náðu hundrað ára aldri en 0,78% þeirra sem fæddust fyrir rúmum 100 árum.
Líkurnar hafa því fimmfaldast á hálfri öld og eru enn að aukast. Mun líklegra
er að konur en karlar nái þessum aldri. Alls hafa 534 Íslendingar orðið
100 ára eða eldri. Af þeim bjuggu 47 erlendis, langflestir vestanhafs.
|
|
 |
Árgangurinn 1908 er sá sterkasti til þessa.
Af 2270 sem fæddust lifandi það ár náðu 27 hundrað ára aldri eða
1,19%. Karlarnir voru 6 en konurnar 21. Næststerkustu árgangarnir voru
1904 (1,00%) og 1895 (0,85%).
Nú eru á lífi 25 Íslendingar
fæddir árið 1909, sem gætu orðið hundrað ára á þessu ári, fimm karlar og
tuttugu konur.
02.01.2009. Sjá
skjal:
Langlífir stúdentar.

|
Tvíburabræður sem eru 95 ára
Tvíburabræðurnir Dagbjartur
Kristinn Gunnarsson, sem nú býr á Hringbraut 50 í Reykjavík
(Elliheimilinu Grund) og Guttormur Ármann Gunnarsson,
Marteinstungu í Rangárvallasýslu verða 95 ára 24. nóvember. Þeir eru
fæddir í Marteinstungu.
Gunnar
Einarsson faðir
þeirra varð 85 ára og Guðrún |
|
 |
Kristjánsdóttir móðir þeirra
varð 93 ára. Ólöf systir þeirra varð 94 ára og bróðir þeirra er að verða
89 ára. Það er Kristján J. Gunnarsson fyrrverandi skólastjóri og
fræðslustjóri í Reykjavík.
Aðeins er
vitað um eitt dæmi þess hér á landi að tvíburar hafi náð 95 ára aldri.
Það voru Ásdís og Sigríður Jónsdóttir úr Fljótum í Skagafirði. Þetta
gerðist í desember 1972. Önnur þeirra lést 52 dögum síðar. Má því segja
að Dagbjartur og Guttormur hafi jafnað Íslandsmetið í langlífi tvíbura.
Til að slá metið þurfa þeir að lifa fram yfir miðjan janúar.
24.11.2008.
(Bræðurnir létust báðir á árinu 2009.)

|
Öldungur af íslenskum
ættum
Ingibjörg Sigríður
Finnsdóttir úr Hnappadalssýslu og Guðmundur Markússon frá Vopnafirði
fóru vestur um haf hvort í sínu lagi fyrir um 120 árum. Árið 1892 gengu
þau í hjónaband og settust að í Hnausabyggð í Kanada.
Samkvæmt
upplýsingum frá Hálfdani Helgasyni áhugamanni um ættfræði (halfdan.is)
er vitað um aldur fimm barna þeirra
|
|
 |
hjóna, sem öll fæddust
vestra. Eitt þeirra varð 92 ára, annað
97 ára, þriðja 101 árs,
fjórða 105 ára og hið fimmta er orðið 107 ára. Það er
Jóhannes Ólafur Guðmundsson, eða Markusson, eins og fjölskyldan
nefndist. Jóhannes er
fæddur 25. ágúst 1901 og dvelur á Betel í Gimli. Föðursystir þessara systkina varð 100 ára og langalangamma
þeirra einnig.
25.08.2008.
(Jóhannes lést 14.03.2009, 107 ára.)

|
Níræðar tvíburasystur fæddust
ekki sama dag
Þær eru tvíburasystur en munu
hafa fæðst með meira en sólarhrings millibili. Áslaug
Sólbjört Jensdóttir fæddist 23. ágúst 1918 en Jennna
(Jensína) Jensdóttir systir hennar 24. ágúst. Foreldrar þeirra
voru Jens Guðmundur Jónsson og Ásta Sóllilja Kristjánsdóttir,
hjón sem voru í húsmennsku að Læk í Dýrafirði en bjuggu síðar að
Minni-Garði í sömu sveit.
|
|
 |
Áslaug var húsfreyja á Núpi í
Dýrafirði. Maður hennar var Valdimar Kristinsson bóndi og skipstjóri, en
hann lést árið 2003. Börn þeirra eru níu. Áslaug er sögð vera gott skáld
og mikill lestrarhestur. Jenna er kennari og hefur skrifað fjölda bóka,
margar þeirra í samvinnu við eiginmann sinn, Hreiðar Stefánsson, sem
lést 1995. Þau eiga tvo syni.
Þess munu einhver dæmi hérlendis
að tvíburasystkini hafi ekki átt sama afmælisdag. Nefna má að Björn L.
Jónsson veðurfræðingur og læknir var fæddur 4. febrúar 1904
en bróðir hans, Jóhann Frímann Jónsson umsjónarmaður, var fæddur 5.
febrúar. Þeir voru á áttræðisaldri þegar þeir létust. Rúmur tugur
íslenskra tvíbura hefur getað fagnað níræðisafmæli.
23.08.2008.

|
Hár
meðalaldur fjögurra systkina
Birna Jónsdóttir á Sauðárkróki
lést í lok júlí, 102 ára. Hún var fædd og uppalin á Grófargili á
Langholti í Skagafirði en bjó lengi á Fagranesi á Reykjaströnd ásamt
manni sínum, Eiríki Sigmundssyni, sem lést fyrir rúmum fjórum áratugum.
Faðir Birnu, Jón Benediktsson, varð 51 árs (bróðir hans varð 98
ára) en móðir hennar, Sigurlaug Brynjólfsdóttir, 96 ára.
|
|
 |
Fjögur af fimm börnum Jóns og Sigurlaugar komust upp. Auk Birnu voru
það Una Jónsdóttir, sem varð 97 ára, Ingibjörg Jónsdóttir, sem varð 96 ára, og
Kristín Jónsdóttir, sem varð
93 ára. Ekki er vitað um hærri meðalaldur fjögurra íslenskra systkina,
eða rúm 97 ár.
17.08.2008
(16.11.2006).

|
Margt
stórkostlegt við hjónabandið
Trausti Guðjónsson og Ragnheiður
Jónsdóttir, sem nú eru á Grund við Hringbraut en bjuggu áður í
Vestmannaeyjum, Kópavogi og Hveragerði, eiga 70 ára brúðkaupsafmæli í
dag. Þau giftu sig 13. ágúst 1938, daginn sem Trausti varð 23 ára, en þá
var Ragnheiður rúmlega 20 ára, en áður höfðu þau dvalið saman í eitt ár
í Noregi.
|
|
 |
Trausti (f. 13.08.1915, 93 ára) er
húsasmiður frá Skaftafelli í Vestmannaeyjum en faðir hans var
útgerðarmaður. Ragnheiður (f. 12.10.1917, 90 ára) er saumakona frá
Gilsfjarðarbrekku í Geiradalshreppi. Þau hafa tekið mikinn þátt í starfi
Hvítasunnusafnaðarins og Vörður Leví Traustason forstöðumaður hans í
Reykjavík er sonur þeirra. Þá má geta þess að Geir Jón Þórisson
yfirlögregluþjónn er tengdasonur þeirra.
Í viðtali í Morgunblaðinu í dag segjast þau
vera hamingjusamari nú en þegar þau trúlofuðu sig. „Það er svo margt
stórkostlegt við hjónabandið.“
13.08.2008.

|
Þuríður
Samúelsdóttir látin,
105 ára
Þuríður Samúelsdóttir,
sem var elsti Íslendingurinn, lést 2. ágúst, 105 ára og 42 daga gömul.
Útförin fór fram í gær í kyrrþey, að hennar eigin ósk. Áður höfðu
24 náð svo háum aldri, tuttugu konur og fjórir karlar (fimm úr þessum
hópi áttu heima í Kanada).
Þuríður var fædd
19. júní 1903 í Miðdalsgröf í
Kirkjubóls- |
|
 |
hreppi í Strandasýslu. Foreldrar hennar voru Samúel Guðmundsson og Magndís Friðriksdóttir. Þuríður átti tvö
alsystkini og þrettán hálfsystkini. Alsystir hennar varð 94 ára.
Maður Þuríðar var Jónatan Halldór Benediktsson bóndi og kaupfélagsstjóri á Hólmavík, en
hann lést árið 1983. Þau áttu fjögur börn. Þuríður bjó að Rauðalæk 21 í
Reykjavík með dóttur
sinni sem er 72 ára og syni sem er 84 ára.
12.08.2008
(19.06.2008, 12.01.2008).

|
Hundrað ára sama daginn
Miðvikudaginn 7. maí verða tveir
Íslendingar hundrað ára sama daginn, en það hefur aðeins gerst sex sinnum áður.
Jóhanna
Guðríður
Kristjánsdóttir fæddist á Kirkjubóli í Önundarfirði. Hún er
systir Ólafs Þ. Kristjánssonar skólastjóra, Guðmundar Inga
Kristjánssonar bónda og skálds (sem varð 95 ára) og Halldór
Kristjánssonar
alþingis-
|
|
 |
manns. Amma þeirra
varð 95 ára.
Jóhanna var lengi í stjórn Sambands
vestfirskra kvenna, er
mikil bindindismanneskja, áhugakona um garðyrkju og skógrækt,
hannyrðakona og skáldmælt. Hún býr nú
á Patreksfirði.
Ragna Sigurbjörg
Guðmundsdóttir Norðdahl fæddist á
Geithálsi í Mosfellshreppi þar sem Guðmundur faðir hennar var með
veitingasölu. Hann
fæddist fyrir 165 árum, en þetta er eitt lengsta lífsskeið
tveggja kynslóða sem vitað er um. Bjarni Pálsson
landlæknir var langalangafi hennar. Móðir Rögnu varð 92 ára,
móðurafi 95 ára, föðursystir 96 ára og hálfbróðir 96 ára. Ragna, sem
ættuð er úr
Norðurárdal í Borgarfirði, lauk
hjúkrunarnámi í Kaupmannahöfn árið 1942 og dvaldi
erlendis til 1949. Síðan vann hún á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, á
Ási í Hveragerði, á Heilsuhælinu í Hveragerði og á Kleppsspítala.
Hún er næstelsta
hjúkrunarkonan sem er á lífi.
Nú eru á lífi 33 Íslendingar sem orðnir eru
hundrað ára, 6 karlar og 27 konur.
07.05.2008.

|
Átta Vestfirðingar orðnir hundrað ára
Af þeim 33 núlifandi
Íslendingum sem eru 100 ára eða eldri eru 8 fæddir á Vestfjörðum.
Aðeins tveir þeirra eru enn búsettir fyrir vestan en hinir á
höfuðborgarsvæðinu.
Tveir elstu Íslendingarnir eru fæddir í
Strandasýslu, Þuríður Samúelsdóttir (104 ára) og Torfhildur
Torfadóttir (103 ára, búsett á Ísafirði).
Einn er fæddur í Norður-Ísafjarðar-
|
|
 |
sýslu, Kristján Jónsson (100 ára).
Tveir eru fæddir á Ísafirði,
Óskar Jensen (101 árs) og
Hólmfríður Guðjónsdóttir (100 ára). Þrír eru fæddir í
Vestur-Ísafjarðarsýslu, Guðrún Jónsdóttir (101 árs), Rósa Gísladóttir Blöndal (101 árs)
og Jóhanna Kristjánsdóttir (100 ára, búsett á Patreksfirði).
Hlutfall Vestfirðinga í hópi háaldraðra er mjög
hátt núna, sem gæti verið tilviljun. Hafa má í huga að aðeins þrír
innfæddir
Vestfirðingar hafa náð 105 ára aldri, en 24 Íslendingar hafa orðið svo
gamlir.
11.05.2008
(27.02.2008).

|
Heillaóskir frá forsetanum
Þeir Íslendingar sem ná hundrað ára aldri fá sent
heillaskeyti frá forseta Íslands. Slíkt mun hafa tíðkast í nokkra
áratugi, samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu embættisins. Í fyrra náðu
tólf Íslendingar þessum áfanga.
Þetta er sennilega það eina sem
opinberir aðilar gera til að gleðja þennan aldurshóp því að árið 1995
hætti Trygginga-
|
|
 |
stofnun ríkisins að greiða hundrað ára Íslendingum
afmælisgjöf, en þá nam hún 25 þúsund krónum.
Slíkt hafði verið gert reglulega síðan 1978 og af og til frá 1951. Í
fréttum frá þeim tíma var talað um „myndarlega peningaupphæð“.
26.02.2008.

|
Var á
Úranusi þegar óttast var um skipið
Jóhannes
Sólbjartur Sigurbjörnsson fæddist á Flateyri við Önundarfjörð 5.
febrúar 1908 og varð því hundrað ára nú í febrúar.
Hann bjó lengst af í Reykjavík og var sjómaður í hálfa öld,
aðallega á togurunum Úranusi og Agli Skallagrímssyni. Hann var fyrsti
stýrimaður á Úranusi þegar óttast var um skipið á |
|
 |
Nýfundnalandsmiðum í janúar 1960 og það jafnvel talið af. Þá
var Jóhannes rúmlega fimmtugur. Kona hans var
Ágústa Skúladóttir en hún lést árið 1983. Börn þeirra voru
fjögur og eru tvö þeirra á lífi, 64 ára og 58 ára.
Jóhannes dvaldi síðustu
árin á
Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Í viðtali sem birtist í Heimilispóstinum,
heimilisblaði Grundar og Áss,
(sjá hér) sagði hann: „Ég hef náð því að láta hluti ekki koma mér úr jafnvægi og
tekið því sem að höndum ber með ískaldri ró. Ég hef ávallt reynt að gera
mitt besta og hafi það ekki dugað þá bað ég bara Guð um að taka við. Svo
einfalt er það.“
Jóhannes lést 27. febrúar 2008.
01.03.2008
(03.02.2008).

|
Orti sálmvers á aldarafmælinu
Vigdís Bjarnadóttir var fædd að Hraunholti í Hnappadal
í Snæfellsnessýslu 17. ágúst 1855. Samkvæmt upplýsingum af ættfræðisíðunni Halfdan.is fór hún til Vesturheims árið 1889 með manni
sínum Birni Björnssyni og tveggja ára syni, Kristjáni Sveini,
sem síðar tók upp nafnið Edgar Holger Cahill og var áhrifamaður í
myndlistarmálum í
Bandaríkjunum. |
|
 |
Vestra eignaðist Vigdís dótturina Önnu,
sem varð 94 ára. Að Birni látnum giftist
hún Samson Friðbjörnssyni Samson. Vigdís var ljóðelsk og skáldmælt. Fram
undir hundrað ára afmælið prjónaði hún vettlinga handa munaðarlausum
börnum.
Vigdís lést í Winnipeg 25. nóvember 1957, 102 ára. Þá var þess
getið í Lögbergi að á aldarafmæli sínu hafi hún ort eftirfarandi
sálmvers: „Ljúfi Jesú, læknir lýða / líknar sólin allra tíða. / Þú mér
veittir styrk að stríða / og studdir mig í hverri neyð, / á minni liðnu
ævileið. / Ég mun framar engu kvíða. / Eilíf náð þín græðir, / hjörtu
vor er hryggðin sárast mæðir.“
03.02.2008.

|
Kristín Guðmundsdóttir látin
Sá Íslendingur sem var
elstur, Kristín Guðmundsdóttir,
lést 8. janúar 2008, 105 ára að aldri. Kristín var
fædd í Kolbeinsvík í Strandasýslu og ólst upp í Byrgisvík. Hún átti
fjórtán systkini. Ellefu þeirra náðu fullorðinsaldri og urðu þau elstu
tæplega níræð. Maður Kristínar var Viggó Guðmundsson, ættaður af Stöndum, en
hann lést fyrir rúmum 34
árum. Þau voru fyrst í húsmennsku á
Kleifum í |
|
 |
Kaldbaksvík í Strandasýslu, fluttu til Ísafjarðar 1935, til
Reykjavíkur 1954 og til Hafnarfjarðar 1958. Börn þeirra voru fjögur og
eru tvö þeirra á lífi, systur á áttræðisaldri.
Kristín bjó síðast að
Álfaskeiði 64 og var orðin 100 ára þegar hún flutti á Sólvang. Þegar
Kristín varð 104 ára kom fram á vefsíðu Sólvangs að hún klæddist alla
daga, heyrnin væri farin að daprast en sjónin væri í lagi og hún læsi
dagblöðin. Þar sagði einnig: „Kristín var mikil handavinnukona, saumaði,
prjónaði og heklaði mikið, hún tekur enn í prjónana. Hún er trúuð og
mikið fyrir að hlusta á sálma og íslensk ættjarðarlög og syngur sjálf.“
09.01.2008
(04.05.2007).

|
Kynntust á dansleik fyrir rúmum sjötíu árum
Hjónin Sigurbjörg Ingvarsdóttir og
Jón Óskar Guð-mundsson áttu 70 ára brúðkaupsafmæli 8. janúar 2008,
hann 95 ára, hún 97 ára. Morgunblaðið segir að þau hafi kynnst á
dansleik í Árnessýslu sumarið 1937. Þau bjuggu fyrst í Þykkvabæ en síðan
lengi í Reykjavík. Afkomendurnir eru orðnir á annað hundrað. |
|
 |
09.01.2008

|
Hlaut móðurmálsverðlaun 96 ára
Sigurbjörn
Einarsson biskup hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á 200 ára afmæli
þjóðskáldsins og flutti ræðu við afhendinguna sem sýndi „að
hann er einn af mestu og bestu ræðumönnum sem þessi þjóð hefur alið,“ eins og það var orðað á einum stað. Í rökstuðningi dómnefndar
segir:
„Hann
er ástsæll kennimaður og sálmaskáld og tök hans á íslensku máli eru
einstök. Hann hefur um áratuga skeið verið |
|
 |
í fararbroddi í trúarlegri, heimspekilegri
og pólitískri umræðu hér á landi og lagt fram drjúgan skerf til viðgangs
íslenskrar tungu og íslenskrar hugsunar með ritstörfum og kennimennsku.“
Sigurbjörn er fæddur 30. júní 1911, varð stúdent fyrir 76 árum,
prestur fyrir 69 árum og biskup fyrir 48 árum. Hann missti konu sína,
Magneu Þorkelsdóttur, á síðasta ári, eftir meira en 72 ára hjónaband.
16.11.2007.

|
Elstir allra karla í heimi
Íslenskir
karlar eru í fyrsta sæti í heiminum hvað varðar ævilengd, samkvæmt
nýjustu tölum Hagstofunnar. Þeir geta vænst þess að lifa í 79,4 ár.
Karlar í Hong Kong eru í öðru sæti, Japanir eru í þriðja sæti, Svíar í
fjórða og Sviss-lendingar í því fimmta. Japanskar konur verða allra
kvenna elstar og hafa haft þá stöðu í meira en tuttugu ár. Lífslíkur
þeirra eru 85,8 ár. Í næstu sætum eru konur í
Taiwan, Spáni, |
|
 |
Sviss,
Hong Kong og San Marino. Íslenskar konur eru í sjöunda sæti með 83,0 ára
ólifaða meðalævi við fæðingu. Síðustu þrjátíu árin hefur ævilengd, þegar
miðað er við fæðingu, aukist meira hjá körlum en konum og bilið milli
kynjanna hefur því styst og er nú 3,6 ár. Lífslíkur í eldri
aldurshópunum hafa aukist hlutfallslega enn meira en í þeim yngri eða um
nær fimmtung. Karlar sem ná 65 ára aldri geta nú búist við að lifa í
17,8 ár til viðbótar og konur í 20,6 ár. Hjá körlum sem ná 80 ára aldri
eru ævilíkurnar 7,7 ár og 9,2 ár hjá konum.
28.07.2007.

|
Átti
lengi Íslandsmet í langlífi
Nýlega birtist grein í tímaritinu Þjóðmálum
(sjá hér)
um Helgu Brynjólfsdóttur í Hafnarfirði, sem fædd var árið 1847 og
lést árið 1953. Þá hafði hún verið elst Íslendinga í mörg ár. Hún átti
Íslandsmet í langlífi í rúman aldarfjórðung, sem er met. Helga
og maður hennar, Stefán Guðmundsson, eignuðust eina dóttur. Barnabörnin
urðu fjögur og er eitt þeirra á lífi, Helga Thordersen, rúmlega 97 ára. |
|
 |
30.06.2007.

|
Ná alþingismenn háum aldri?
Ármann Jakobsson bókmenntafræðingur hefur velt þessari
spurningu fyrir sér og komist að raun um að þrjátíu þingmenn hafa náð 90
ára aldri, þar af hafa sjö orðið 95 ára eða eldri. Andrés Eyjólfsson í
Síðumúla í Borgarfirði varð elstur, 99 ára, Karl Einarsson 98 ára,
Gunnar Ólafsson og Páll Melsteð 97 ára og Jörundur Brynjólfsson,
Bjarni
Thorsteinsson og Sigurður Óli Ólafsson 95 ára. Gunnar |
|
 |
Gíslason í
Glaumbæ í Skagafirði er elstur á lífi af fyrrverandi þingmönnum, 93 ára,
Vilhjálmur Hjálmarsson á Brekku í Mjóafirði er 92 ára og Sigurður
Bjarnason frá Vigur er 91 árs. Sigurður er einn á lífi af þeim sem voru
á Alþingi við lýðveldisstofnunina 1944.
Þess má geta að þegar Sighvatur
Árnason lét af þingmennsku árið 1902 var hann rúmlega 78 ára, sem er
met. Pétur Ottesen hefur setið manna lengst á þingi, í tæp 43 ár.
13.05.2007.

|
Langlífi tveggja kynslóða
María Tryggvadóttir lést fyrir nokkrum dögum, 89 ára að
aldri. Þegar hún fæddist var faðir hennar, Tryggvi Gunnarsson
alþingismaður og bankastjóri (sjá mynd), nýlátinn, 82 ára. Þessar tvær
kynslóðir lifðu því í 171 ár, sé miðað við tímann frá fæðingu
föður að andláti barns. Þetta mun vera Íslandsmet að mati Ármanns
Jakobssonar bókmenntafræð-ings og áhugamanns um langlífi.
Ásta Beck, sem nú er 93 |
|
 |
ára, er dóttir Hans Jacobs Beck á Reyðarfirði sem var tæplega
75 ára þegar hún fæddist. Lífshlaup þeirra feðginanna er því 168 ár.
Hjalti Pálsson
fræðimaður frá Hofi hefur bent á að þegar
Sigurlaug Jakobína Jónasdóttir garnaspákona á Kárastöðum í Hegranesi í
Skagafirði lést 11. apríl síðastliðinn, 92 ára gömul, voru liðin tæplega 167
ár frá fæðingu föður hennar, Jónasar Jónssonar smáskammta-læknis í
Hróarsdal í Hegranesi. Vitað er um tuttugu aðra feðga eða feðgin þar sem lífshlaupið er hálf önnur öld eða meira.
09.05.2007
(12.05.2007).

|
Langlífir hjúkrunarfræðingar
Nú eru fimmtán hjúkrunarfræðingar á lífi á tíræðisaldri. Elst
er Ragnheiður Svanlaugsdóttir, sem verður 100 ára þriðjudaginn
15. maí, Ragna S. Norðdahl verður 99 ára á morgun, Sigrún
Straumland varð 98 ára í febrúar og Helga Thordersen (sjá
neðar á síðunni) varð 97 ára í fyrrahaust. Ekki er vitað um nema fjóra
aðra hjúkrunarfræðinga sem hafa náð 95 ára aldri. Þær elstu urðu
98 ára svo að Ragnheiður |
|
 |
og Ragna hafa slegið það met. Af 3.321 hjúkrunarfræðingi í
Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga eru 555 eftirlaunaþegar.
06.05.2007.

|
Lauk hjúkrunarnámi fyrir 70 árum
Hinn 1. maí 1937 luku þrettán ungar konur námi frá
Hjúkrunarkvennaskóla Íslands. Ein þeirra er enn á lífi, Helga
Thordersen, sem nú býr á Hrafnistu í Hafnarfiði og er 97 ára. Að
námi loknu vann hún á Akureyri, á Ísafirði, í Danmörku og víðar en
lengst þó á Vífilsstaðaspítala. Helga er barnabarn Helgu Brynjólfsdóttur
sem varð 106 ára. Bróðir Helgu eldri varð 96 ára og tvö
systkinabörn hennar 98 og 99 |
|
 |
ára. Systir Helgu
yngri varð 99 ára. Langafi hennar var Helgi Thordersen biskup og
föðursystir hennar
var kona Hannesar Hafsteins skálds og ráðherra.
Helga minnist
þess að hafa séð ráðherrahjónin þegar hún var á fjórða ári. Helga
Thordersen er mjög hress og lífsgleðin geislar af henni. Helsta áhugamál
hennar er ættfræði og hún skoðar Íslendingabók á veraldarvefnum á
fartölvu sem hún keypti sér nýlega. Hún gæti átt eftir að lifa lengi
enn, en gerir ekki mikið úr því. „Ég get dáið á morgun,“ segir hún.
22.04.2007.

|
Lengsta hjónaband
Íslendinga
Kristján G.
Kristjánsson og Svanfríður Jónsdóttir hafa lifað lengst allra
Íslendinga í hjónabandi, í 75 ár og 297 daga. Hann var
Skagfirðingur en hún Þingeyingur. Þau voru gefin saman í kirkjunni á
Sauðanesi á Langanesi 7. júní 1877, hann 26 ára, hún 20 ára. Ári síðar
fluttu þau til Vesturheims og bjuggu lengst af í Mountain í
Norður-Dakota í Bandaríkjunum. Þegar haldið var upp á 75 ára brúðkaups- |
|
 |
afmælið fengu þau bréf
frá Harry S. Truman Bandaríkjaforseta og AP-fréttastofan dreifði mynd af
þeim víða. Kristján
var mjög bókhneigður og las jafnan
Tímann og Morgunblaðið til að fylgjast með amerískum fréttum vegna að
hann treysti ekki öðrum blöðum en íslenskum! Þau létust bæði snemma árs
1953, Kristján orðinn 102 ára, Svanfríður 96 ára.
Í minningargrein um Kristján segir: „Hans
heima var í raun réttri alltaf á Íslandi.“
11.02.2007.

|
Lengsta
hjónaband á Íslandi
„Ég
er viss um að tilvera mín byggist á því hvað ég er vel giftur, konan
hefur alltaf bætt mig upp og við höfum aldrei rifist. En aldurinn, ég
þakka bara Guði almáttugum hversu langt ég hef náð og það má segja að
það sé eins og einhver forsjón hafi alla tíð fylgt mér.“ Þetta sagði
Sigurður Magnússon hreppstjóri í Stykkishólmi í viðtali við
Morgunblaðið í tilefni af hundrað ára afmæli sínu vorið
1980. |
|
 |
Enda þótt Sigurður hafi verið orðinn 28 ára
þegar hann giftist Ingibjörgu Daðadóttur, þá 24 ára, í
Dómkirkjunni í Reykjavík 19. desember 1908 náðu þau að lifa lengur í
hjónabandi en nokkur önnur hjón á Íslandi eða í 75 ár og 140 daga.
Áður en þau giftu sig höfðu þau verið í festum í þrjú ár. Sigurður varð
104 ára og Ingibjörg 103 ára. Móðir hennar, móðursystir og bróðir náðu
einnig hundrað ára aldri.
11.02.2007.

|
Háöldruð hetja úr þorskastríði
Hann var skipherra á
varðskipum í rúma þrjá áratugi og tók þátt í björgun 640 skipa og báta.
Frægastur er hann fyrir staðfestu sína í tólf mílna þorskastríðinu við
Breta 1959-1962. Eiríkur Kristófersson var fæddur árið 1892 á
Barða-strönd. Systkinin voru sautján. Í viðtali við Morgunblaðið í
tilefni af sjötugsafmælinu sagði hann að það hefði verið skemmtilegt
að alast upp á barnmörgu heimili.
„Þetta var |
|
 |
talið inn að kvöldi
eins og kindurnar og athugað hvort eitthvað vantaði.“ Meðalaldur
þeirra þrettán systkina
sem upp komust var 86 ár en ekkert þeirra náði jafn háum aldri og
Eiríkur, sem varð 102 ára.
Í blaðaviðtali á aldarafmælinu sagðist hann
vera sáttur við allt og alla, enda hafi hann aldrei hatað nokkurn mann
þó að því sé ekki að neita að honum hafi líkað misvel við fólk. Eiríkur
sagðist þá leggjast til svefns á hverju kvöldi alveg eins viðbúinn því
að hafa hoppað yfir að morgni.
26.01.2007.

|
Vinkona
þjóðskálda
Í Ísafold 14. janúar 1914 birtist
svohljóðandi frétt úr Flatey á Breiðafirði: „Í vetur hafa óvenjumargir
dáið hér á eyjunni, þar á meðal háöldruð kona, Salbjörg að nafni, 100
ára; var ekkja Jóhanns bónda Eyjólfssonar, bróður síra Sveinbjarnar
heitins í Árnesi og Hafliða heitins í Svefneyjum. Hún hafði fóstrað
Steingrím heitinn Thorsteinsson skáld (sjá mynd) í barn-æsku hans og
skrifaði Steingrímur henni við og við og sendi
|
|
 |
henni myndir af sér.“ Salbjörg þessi var
Þorgeirsdóttir. Hún var
fædd í desember 1814 og varð því „aðeins“ 99 ára, en mun samt hafa verið
elst Íslendinga á þessum tíma. Annað þjóðskáld, séra Matthías
Jochumsson, segir frá því í sjálfsævisögu sinni að hann hafi hitt
Salbjörgu þegar hún var á hundraðasta ári. Matthías segir að hún hafi
þótt kvenskörungur.
16.01.2007.

|
„Mér finnst
ég alltaf vera ungur“
Í fyrra náðu átján Íslendingar hundrað ára
aldri. Fyrir um hálfri öld, árið 1957, voru þeir þrír: Vilborg
Þorleifsdóttir á Siglufirði í janúar, Pétur Hafliðason í Reykjavík í
ágúst og Guðmunda Friðbjörg Jónsdóttir í Öxarfirði í desemnber. Pétur Hafliðason
var þekktur borgari og talinn sá innfæddi Reyk-víkingur sem náð hefði
hæstum aldri. Þess vegna var mikið skrifað um afmæli hans og reyndar
einnig birtar æviminning-
|
|
 |
ar hans nokkru áður í tímaritum. Pétur fór
ungur til Þýskalands til að læra beikisiðn og var síðan lengi í
Suður-Afríku. Þegar hann kom heim, rúmlega þrítugur, hafði hann dvalið
erlendis í rúman áratug.
Í Morgunblaðsviðtali var til þess tekið að
Pétri hefði farið fram með aldrinum því að hann hefði áður þurft
lesgleraugu en nú læsi hann blöðin gleraugnalaust. Aðspurður hvort honum
finndist ekki langt síðan hann var ungur maður svaraði hann: „Mér finnst ég alltaf
vera ungur.“ Og
þegar hann var spurður hvort hann myndi þegar konungurinn kom til
Þingvalla árið 1874 var svarið einfalt: „Já,
ég man eftir því. Hann var þar, en ég ekki.“
Pétur lést í desember 1957. Hann var móðurbróðir séra Bjarna Jónssonar.
04.01.2007.

|
Elstu
Siglfirðingarnir
Síðustu hálfa öldina hafa fjórir
Siglfirðingar náð hundrað ára aldri. Elst varð Halldóra Björnsdóttir,
rúmlega 101 árs. Elsti núlifandi Siglfirðingurinn er 98 ára og sex aðrir
eru yfir nírætt. Hlutfall 67 ára og eldri er hærra á Siglufirði en í
flestum öðrum þéttbýlisstöðum landsins.
20.12.2006.
|
|
 |

|
Þrjár systur
náðu hundrað ára aldri
Þær voru systur, fæddar á Reykjavöllum í
Skagafirði á árunum 1859-1863 og fluttu til Vesturheims 1876 með
foreldrum sínum, Guðmundi Skúlasyni, sem varð 78 ára, og Guðríði
Guðmundsdóttur, sem varð 92 ára. Fyrstu árin var fjölskyldan í Manitoba
í Kanada en síðan í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum. Ingiríður
Guðmundsdóttir varð 102 ára, Sigrún Guðmundsdóttir 101 árs og
Guðríður Guðmunds- |
|
 |
dóttir 100 ára. Tvær eldri systurnar
bjuggu síðan í Kanada en sú yngsta í Bandaríkjunum. Tveir bræður þeirra
náðu einnig fullorðinsaldri, annar varð 93 ára, hinn 67 ára. Þeir voru
báðir lögfræðingar og sátu á ríkisþingum. Meðalaldur systkinanna fimm er
því 93 ár. Þetta mun vera eina dæmið um að þrjú íslensk systkini hafi
náð svo háum aldri.
19.12.2006.

|
Lífið batnar
lítið við að vola
Kristján Jóhann Jónsson bóndi í
Lambanesi í Fljótum var orðinn rúmlega 104 ára þegar hann lést í
desember 1959. Enginn annar karlmaður hafði þá náð svo háum aldri og það
met var ekki slegið fyrr en þremur áratugum síðar. Kristjáni var þannig
lýst að hann hefði verið rólyndur, góðlyndur og góðviljaður. Kristján
bar aldurinn vel og í viðtali á aldar-afmælinu var hann sagður líta út
eins og hann væri 75 til 85 |
|
 |
ára. Ekki gat hann svarað því hvers vegna
hann varð svona langlífur en taldi glaðlyndið geta átt þátt í því.
17.12.2006.

|
Meira en
þrjátíu Vestur-Íslendingar á skrá
Af þeim 485 Íslendingum sem nú er vitað að
náð hafa hundrað ára aldri eru 36 sem fæddust hér á landi en fluttu til
Vesturheims, flestir í lok nítjándu aldar, ólu nær allan sinn aldur þar
og létust þar. Elst þeirra er Guðrún Björnsdóttir, sem varð
tæplega 110 ára. Á meðfylgjandi töflu, sem unnin er í samráði við
Hálfdan Helgason, eru fæðingardagar og dánardagar
þessa fólks. Hálfdan hefur sent þessar
upp- |
|
 |
lýsingar í fréttabréfi sínu
(sjá hér) til hundruða manna og óskað eftir ábendingum um fleiri háaldraða landa í
Kanada og Bandaríkjunum.
15.12.2006.

|
Þrír
langlífir ættliðir
Þegar Salbjörg Sigurðardóttir lést
sumarið 1997 í Saskatchewan í Kanada var hún orðin 102 ára. Hún hafði
flutt vestur um haf fjögurra ára að aldri með foreldrum sínum úr
Skagafirði, Sigurði Sölvasyni sem varð 101 árs og Jóhönnu
Stefánsdóttur sem varð 107 ára. Móðir Jóhönnu, Lilja Jónsdóttir,
fór einnig til Vesturheims og varð 99 ára. Það mun vera einstakt
að þrjár kynslóðir úr sömu fjölskyld- |
|
 |
unni nái svo háum aldri. Þess má geta að
Salbjörg (sem notaði fyrst eftirnafnið Sölvason og síðar Mercer) var
kennari að mennt. Fram að hundrað ára aldri hélt hún góðri heilsu og
heklaði og prjónaði fyrir afkomendurna og aðra.
11.12.2006.

|
Í hjónabandi
í 72 ár
Í dag fer fram útför Ásmundar Eiríkssonar
á Ferjunesi í Villingaholtshreppi í Árnessýslu, en hann var orðinn 98
ára. Kona hans, Oddný Kristjánsdóttir, er enn á lífi, 95 ára. Þau
voru gefin saman í hjónaband 2. maí 1934, hann 25 ára, hún 22 ára, og
voru gift í 72 ár og 209 daga. Aðeins sjö íslensk hjón hafa verið gift
lengur. Þegar Oddný var níræð kom út bók með
úrvali úr verkum hennar, ljóðum og greinum. |
|
 |
Nú eru á lífi tvenn hjón sem hafa verið gift í meira en
sjötíu ár og þau þriðju bætast við 12. desember þegar 70 ár verða síðan
Vilhjálmur Hjálmarsson ráðherra frá Brekku í Mjóafirði og Margrét
Þorkelsdóttir giftu sig, bæði 22 ára. Sextíu ára brúðkaupsafmæli er
kallað demantsbrúðkaup en sjötíu ára yfirleitt platínubrúðkaup. Rúmlega
þrjátíu hjón hafa náð þeim áfanga. Íslandsmetið er rúm 75 ár.
09.12.2006. (Oddný lést í maí 2007.)

|
Hæsti
meðalaldur fimm systkina?
Hjónin Halldór Guðmundsson og Guðbjörg
Guðmundsdóttir sem bjuggu að Strandarhjáleigu í Vestur-Landeyjum
í Rangárvallasýslu eignuðust þrettán börn á árunum frá 1856 til
1875. Aðeins fimm þeirra náðu fullorðinsaldri. Þórunn
Halldórsdóttir
varð 95 ára, Guðbjörg Halldórsdóttir 96 ára, Hallbera Júlíana
Halldórsdóttir 100 ára, Katrín Halldórsdóttir 82 ára og
Þorbjörg Halldórsdóttir 104 ára.
|
|
 |
Meðalaldurinn er 95 ár, sem er sá hæsti sem
vitað er um þegar fimm systkini eiga í hlut og sá næst hæsti í heild.
09.12.2006.

|
Sagðist
aldrei verða gömul
Hún hét Vigdís og var Eiríksdóttir, fædd og
uppalin í Árnessýslu en bjó lengst í Miðdal í Mosfellssveit. Á hundrað
ára afmælinu, 1. nóvember 1932, segir í blaðagrein að margir vinir
hennar séu „löngu horfnir úr tölu lifenda“. Vigdís var sögð
vel
greind, bókhneigð með afbrigðum og trúuð. Hún hafði yndi af sálmum en
átti erftitt með að átta sig á því hvernig hægt væri að
sitja heima en samt vera að hlusta á guðs- |
|
 |
þjónustu í Dómkirkjunni, en þetta var á fyrstu árum
Útvarpsins. Vigdísi fannst ekki mikið til um aldur sinn og þegar hún var
níræð sagði hún: „Ég verð aldrei gömul.“ Vigdís Eiríksdóttir var
langamma Vigdísar Finnbogadóttur og Ara Trausta Guðmundssonar og
langalangamma Guðna Bergssonar.
15.11.2006.

|
Sex ættliðir
á lífi í beinan kvenlegg
Fjórum dögum áður en Stefanía Ólafsdóttir
andaðist, í janúar 1974, fæddist barnabarnabarnabarnabarn hennar. Þá
voru sex ættliðir á lífi í beinan kvenlegg. Stefanía, sem var
frá Hofi á Höfðaströnd og móðir Andrésar Björnssonar
útvarpsstjóra og þeirra systkina, var þá 95 ára, dóttir hennar
77 ára, dótturdóttir 52 ára, dótturdótturdóttir 36 ára, dótturdótturdótturdóttir 19 ára
og dótturdótturdótturdóttur- |
|
 |
dóttir nýfædd. Frá þessu er sagt í Skagfirskum æviskrám.
Bilið milli kynslóðanna var að meðaltali 19 ár. Þetta mun vera einsdæmi hér á landi.
Ein dóttir Stefaníu varð 91 árs, önnur 97 ára og ein er orðin 98 ára.
14.11.2006 ( 06.01.2007).

|
Lifði sex biskupa og sex konunga
„Hundrað ára gömul heiðurskona jörðuð að
Strandarkirkju,“ sagði í fyrirsögn í Morgunblaðinu 21. janúar 1937, en
útförin hafði að vísu farið fram tveimur mánuðum áður. Þessi kona hét
Málfríður Jónsdóttir og var ættuð úr Austur-Skaftafellssýslu. Hún
hafði misst manninn sinn fyrir 35 árum, verið blind síðustu
20 árin „og heyrnarsljó seinustu árin, en hélt óskertum sálargáfum fram í dauðann.
Hafði hún lifað 6 biskupa og 6 konunga.“
09.11.2006. |
|
 |

|
Fæddust sama daginn og voru gift í
hálfa öld
Það mun vera mjög sjaldgæft að hjón
séu fædd sama dag og sama ár. En þetta kemur fyrir. Þegar
Stefanía Benjamínsdóttir og Guðmundur
Ólafsson voru gefin saman í hjónaband, 17. september 1892, voru þau bæði
nákvæmlega 26 ára, fædd 17. september 1866. Þau voru bæði fædd á
Fljótsdalshéraði og hófu þar sinn búskap en bjuggu svo nokkur ár á
Vopnafirði. Síðan stunduðu þau veit-
|
|
 |
ingarekstur á Seyðisfirði en fluttu til
Reykjavíkur 1917, þar sem Guðmundur gerðist innheimtumaður. "Sambúð þeirra Stefaníu og Guðmundar hefur
verið til fyrirmyndar og hjónaband þeirra hið farsælasta," sagði í
blaðagrein þegar þau voru sjötug. Þau héldu upp á fimmtíu ára
brúðkaupsafmælið sama dag og þau voru 76 ára. Stefanía lést vorið 1943, 76 ára, en
Guðmundur í árslok 1949, 83 ára. Þrjú af börnum þeirra komust upp. Eitt
þeirra var Anna Guðmundsdóttir leikkona.
08.11.2006.

|
Uppi á þremur
öldum
Hve margir Íslendingar voru uppi á þremur
öldum, nítjándu, tuttugustu og tuttugustu og fyrstu? Þeir voru 26
talsins, fæddir á árunum 1895 til 1900, dánir árin 2001-2006. Þeir
síðustu létust á þessu ári: Guðfinna Einarsdóttir í apríl, 109 ára,
Guðmundur Davíðsson í maí, 105 ára, Jóhanna Þóra Jónsdóttir í september,
106 ára, og Sólveig Pálsdóttir í október, 109 ára.
07.11.2006.
|
|
 |

|
Sá ekki Jón Sigurðsson - en föður
hans
Í Morgunblaðinu 7. janúar 1939 er sagt að
Elísabet Árna-dóttir á Bíldudal sé að verða hundrað ára.
Hún hafði þá fóta- vist „og enn húsforráð“. Í viðlögum annaðist hana rúmlega níræð kona í næsta húsi.
Nokkrum dögum síðar segir í blaðinu að þær hafi orðið ósáttar út
af því hvor þeirra væri unglegri. „Þetta er að láta ekki
hugfallast þó aldurinn færist yfir mann.“ Mánuði síðar er langt
viðtal við Elísabetu. Þar |
|
 |
kemur fram að hún hafi verið fædd í
Arnarfirði, skammt frá
fæðingarstað Jóns Sigurðssoar forseta og aðspurð hvort hún hafi ekki
hitt hann svarar hún: „Jón Sigurðsson var farinn að heiman frá Rafnseyri
þegar ég fór að stálpast - en ég man eftir föður hans er hann kom að
húsvitja.“ Hún hafði aldrei ferðast lengra en til Ísafjarðar, en það
voru áttatíu ár síðan. Í lok viðtalsins sagði Elísabet við blaðamanninn:
„Ef ég mætti biðja þig um að gera nokkuð fyrir mig þá vildi ég biðja þig
að biðja fyrir mér. Mér þætti afar vænt um það.“
05.11.2006.

|
Íslandsmet og
Íslendingamet
Þegar Þuríður Sólveig Pálsdóttir á
Svínafelli í Öræfum sló aldursmet Guðfinnu Einarsdóttur
um miðjan október 2006 var því haldið fram að hún væri elsti Íslendingur sögunnar.
Það má til sanns vegar færa að Sólveig eigi Íslandsmet í langlífi en hún á ekki Íslendingametið því að Guðrún Björnsdóttir
sem lést í Kanada árið 1998 varð 109 ára og 310 daga. |
|
 |
En nú er Sólveig látin. Hún var fædd
20. ágúst 1897 og lést
28. október 2006 og lifði því í 109 ár og 69 daga.
Eflaust líða fimm til tíu ár þar til það met verður slegið
29.10.2006.

|
Hundrað ára systkini
Það þótti í frásögur færandi í haust
þegar Þorsteinn Eyjólfsson varð 100 ára að hann á systur á lífi,
Þorbjörgu Eyjólfsdóttur sem er að verða 102 ára. Og þau dvelja
bæði á Hrafnistu í Hafnarfirði. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem íslensk
systkini, hundrað ára eða eldri og búsett á Íslandi, eru á lífi á sama
tíma. Sex önnur systkini hafa náð hundrað ára aldri en aldursmunur
þeirra hefur verið meiri.
|
|
 |
28.10.2006.
(Þorsteinn lést 13. apríl 2007 og Þorbjörg 2. ágúst 2007.)

|
Samtíðarkona
Viktoríu drottningar
Ólöf Bjarnadóttir á Egilsstöðum
á Völlum hélt upp á 100 ára afmæli sitt 1. nóvember 1934. Sex dögum
síðar skrifaði Jónas Jónsson frá Hriflu um hana í Tímann og benti á að
Ólöf hefði verið samtíðarkona Viktoríu Englandsdrottningar, en þó náð
hærri aldri, að hún hefði verið á barnsaldri þegar Jónas Hallgrímsson
orti Gunnarshólma og að hún myndi glöggt þjóðhátíðina 1874. „Hún
er ótrúlega hress og heilsugóð, les |
|
 |
án gleraugna, hlustar á hverja
útvarpsmessu og miklu meira af þeim andlegu nýjungum sem berast henni loftleiðis. Hún
kemur úr herbergi sínu og blandar sér í umræðuefni heimilisfólks og
gesta með þeirri ró og víðsýni sem einkennir þann sem lifað hefur með í
starfi og þróun heillar aldar,“ segir Jónas. Þessi „ættmóðir
Egilsstaðamanna“ varð tæplega 103 ára.
28.10.2006.

|
Snemma byrjað að smíða
Morgunblaðið sagði frá því 21. febrúar 1929 að skömmu
áður hefði Ólöf Halldórsdóttir látist, 98 ára að aldri og elst
Reykvíkinga. Hún var fædd og alin upp í Árnessýslu. Þegar hún var
rúmlega tvítug veiktist hún „svo alvarlega að hún var talin dauð og
byrjað að smíða utan um hana en rankaði svo við úr því dauðadái.“ Eftir að Ólöf flutti til borgarinnar bjó hún
lengi í Hábæ við Skólavörðustíg, fékkst við hjúkrun sjúkra og
|
|
 |
var eftirsótt til
þeirra starfa, enda var henni „létt og ljúft að vinna fyrir aðra, hjálpa
og hjúkra þar sem meiri var líknarþörf en launavon.“
27.10.2006.

|
Örlagadagurinn þrettándi
Miðvikudaginn 12. maí 1915 sagði Morgunblaðið að daginn
eftir yrði Þorgeir Finnsson á Hamri við Borgarnes 100 ára. Næsta
dag var þetta borið til baka og sagt að samkvæmt kirkjubókum væri hann
fæddur 4. maí 1817 og því rúmlega 98 ára. Blaðið sagði að gömlum mönnum
gleymdist oft aldur sinn „og hættir til þess að ætla sig eldri en þeir
eru í raun og veru“. Nokkrum dögum síðar birti
blaðið frétt um að gamli |
|
 |
maðurinn sem
hélt því fram að hann yrði 100 ára 13. maí væri látinn.
„Svo einkennilega vildi til að hann dó 13. maí – og er með honum hniginn
í valinn elsti karlmaðurinn á Íslandi á þessari öld.“
27.10.2006.

|
Um
söng, tennur og stafleysi
Í gömlum ritum eru víða frásagnir af fólki
sem sagt er að náð hafi mjög háum aldri, sem útilokað er að staðfesta,
enda löngu fyrir tíma opinberra kirkjubóka. Jón Jónsson prestur á
Staðarhrauni, sem lést 1653, varð, samkvæmt Fitjaannál, 113 ára en söng
þó, skrifaði og las allt til síðasta árs. Árið 1702 andaðist 120 ára
kona á Austfjörðum og „hafði hún fengið nýjar, hvítar tennur,“
eins og það er orðað í Mælifells-
|
|
 |
annál. Árni Gíslason í Framnesi í
Rangárvallasýslu var á lífi 1704, sagður 112 ára gamall. Tveimur árum
áður var hann „ferðafær einsamall milli bæja, brúkaði staf en gekk þess
á milli staflaust og var heilskyggn“. Þetta kemur fram í Sunnanfara árið
1893.
27.10.2006.

|
|
SKJÖL
Tuttugu elstu á lífi (pdf). NÝTT
Elstu karlarnir (pdf).
NÝTT
Langelstu
Íslendingarnir (105 ára og eldri, pdf).
Í hjónabandi í 70 ár eða
lengur (pdf).
Hundrað ára
systkini (pdf).
Sífellt fleiri hundrað ára (pdf).
Langlífir stúdentar (pdf).
Langlífir læknar (pdf).
Langlífir
hjúkrunarfræðingar (pdf). NÝTT
Hundrað ára Vestur-Íslendingar (pdf).
Langlífir
Siglfirðingar (pdf).
NÝTT
Sex ættliðir á lífi (pdf).
NÝTT
GREINAR
Fimm Siglfirðingar hafa náð
hundrað ára aldri.
Átti Íslandsmet í langlífi í rúman aldarfjórðung (pdf).
Kristján í Lambanesi var
lengi elstur íslenskra karla.
Lifandis ósköp er gaman að hafa lifað svona lengi. Heilbrigðismál,
september 2006 (pdf).
INNLENT
Handboltaáhugakona á
hundraðasta ári.
22.08.2008.
Ég tóri eins og hinir. 16.07.2008.
97 ára bílstjóri. 07.07.2008.
Elsti þátttakandi í Kvennahlaupinu 104 ára. 09.06.2008.
Það
var engin brúðkaupsveisla - en við erum saman enn. 14.05.2008.
Þriðjungur vill
verða hundrað ára eða eldri. 13.05.2008.
Fékk nýja augasteina fyrir aldarafmælið. 21.04.2008.
Með klippur og sög á göngugrindinni. 14.04.2008.
Hættir verslunarrekstri 97 ára að aldri. 03.04.2008.
Langar enn til að vinna í sláturhúsinu.
23.02.2008.
Hef
ávallt reynt að gera mitt besta. 00.12.2007.
Heilsuhraust heima í heila öld. 22.05.2007.
Þakkar selspiki langlífið. 30.03.2007.
Öldrunarvandinn
(A Drag Growing Old). 27.03.2007.
Syngja
meðan heilsan leyfir. 11.01.2007.
Giftu sig á Brekku í Mjóafirði árið 1936. 13.12.2006.
Elsti
Íslendingur allra tíma. 18.10.2006.
Elsti Íslendingurinn 109 ára í dag. 02.02.2006.
Guðmundur Daðason elstur karla. 13.11.2005.
Íslenskættuð kona tæplega 110 ára. 22.05.2005.
Allra kvenna elst. 19.03.2005.
ERLENT
Hundrað ára læknir
vestanhafs.
25.02.2010.
Stóð vaktina í rúm áttatíu ár.
22.02.2010.
Sífellt fleiri Svíar verða 100 ára.
00.01.2010.
Fékk nýtt kort frá drottningunni.
23.11.2009.
Neysluvenjur þeirra sem lifa
lengst. 31.03.2009.
Elsti bloggari heims látinn. 14.07.2008.
Aldraðar stríðshetjur. 11.11.2006.
Köld sturta á hverjum degi. 25.08.2006.
Want to
be 100? Listen to these 5 centenarian. 17.08.2006.
Want to
celebrate 100? Live smarter and you can live to be older. 07.05.2006.
Live to be a centenarian. 02.11.2005.
TILVITNANIR
Morgunblaðið, 01.03.2010.
Morgunblaðið, 31.12.2009.
Stöð 2 12.08.2008.
Vísir, 12.08.2008.
Bæjarins besta,
12.08.2008.
Morgunblaðið, 12.08.2008.
Bæjarins besta,
19.06.2008.
Bæjarins besta,
26.05.2008.
Vísir,
24.05.2008.
Bæjarins besta,
15.05.2008.
Morgunblaðið, 14.05.2008.
Morgunblaðið, 07.05.2008.
Suðurlandið, 07.05.2008.
Önfirðingafélagið,
07.05.2008.
Vísir, 07.05.2008.
Eyjan, 07.05.2008.
Bæjarins besta,
07.05.2008.
Lífið á Sigló,
20.02.2008.
Morgunblaðið, 16.02.2008.
Lífið á Sigló,
25.01.2008.
Strandir, 16.01.2008.
Bæjarins besta, 14.01.2008.
Vísir, 11.01.2008.
Bæjarins besta, 11.01.2008.
Bæjarins besta, 02.01.2008.
Mbl, 31.12.2007.
Bæjarins besta, 31.12.2007.
Iceland
Forum, 09.09.2007.
GG - dagbók,
14.08.2007.
Tímarit hjúkrunarfræðinga,
01.06.2007.
GG - dagbók, 30.05.2007.
Bæjarins besta, 11.05.2007.
Morgunblaðið, 10.05.2007.
Lífið á Sigló, 22.04.2007.
Lífið á Sigló, 08.01.2007.
Bæjarins besta, 02.01.2007.
Morgunblaðið, 31.12.2006.
Morgunblaðið, 31.12.2006.
The Emigration
from Iceland to North America, 15.12.2006.
Morgunblaðið, 31.10.2006.
|